Skilmálar
Verðtilboð
Verðið sem reiknivélin sýnir er áætlun byggð á svörunum þínum, ekki bindandi tilboð. Endanlegt verð er staðfest í símtali eða skriflega áður en vinna hefst.
Greiðslur
Greitt er í gegnum Fiverr. Þar gilda skilmálar Fiverr um greiðslur, kaupendavernd og endurgreiðslur, og féð fer ekki til mín fyrr en verkinu er skilað.
Afhending
Afhendingartími hvers pakka er talinn í virkum dögum frá því að allt efni og aðgangar liggja fyrir.
Frumkóði
Þú færð allan frumkóða afhentan og átt hann að fullu þegar greitt hefur verið.
Breytingar
Fjöldi breytinga fer eftir pakkanum. Breytingar sem stækka verkefnið umfram það sem samið var um eru verðlagðar sérstaklega, alltaf eftir samtal.