Persónuvernd
Hverju er safnað
Nafni, netfangi, símanúmeri og því sem þú skrifar um verkefnið, ásamt svörunum í verðreiknivélinni. Ef þú komst hingað af auglýsingu er einnig skráð hvaðan þú komst.
Til hvers
Til að svara fyrirspurninni þinni og gera þér verðtilboð. Engum öðrum tilgangi.
Hver sér þetta
Jacob, sem rekur þessa síðu. Upplýsingarnar eru geymdar í gagnagrunni á eigin netþjóni á Íslandi og í Þýskalandi og eru ekki seldar eða leigðar.
Mælingar
Síðan notar Meta Pixel til að mæla árangur auglýsinga. Þar er netfang og símanúmer aðeins sent dulkóðað (hashað), aldrei í læsilegu formi.
Hversu lengi
Fyrirspurnir eru geymdar í mest 24 mánuði og eyðast eftir það, nema úr þeim hafi orðið viðskipti.
Réttindi þín
Þú mátt hvenær sem er biðja um afrit af því sem er skráð um þig, biðja um leiðréttingu eða biðja um að því verði eytt. Sendu tölvupóst og því er sinnt.